Vertu með og taktu þátt í skemmtilegri upplifun í góðum félagsskap.
Stangaveiði er skemmtileg og fjölskylduvæn íþrótt fyrir alla. Hjá okkur áttu möguleika á að starfa með og læra af skemmtilegum og fjölbreyttum hópi fólkis. Í boði er gefandi félagsstarf ásam veiðileyfum á félagsverði í fjölbreyttum ám og vötnum. Raunar er úrvalið svo mikið að enginn einn aðili annar á landinu býður upp á jafn fjölbreytta valkosti eins og SVFR. Félagið býður býður einnig uppá öflugt fræðslustarf og í gegnum barna- og unglingastarfið hafa ótal margir veiðimenn stigið sín fyrstu skref í veiðinni.
Ávinningurinn á því að gerast félagi er m.a.:
- Taka þátt í skemmtilegu og uppbyggilegu félagsstarfi
- Þú getur keypt hagstæð veiðileyfi á félagsverði í fjölmörgum lax- og silungsveiðiám
- Þér stendur til boða að taka þátt í forgangsútlutun veiðileyfa í Elliðaánum og öðrum ársvæðum
- Átt möguleika á að kaupa Veiðikortið með félagsafslætti
- Færð fría áskrift að Veiðimanninn sem kemur út tvisvar sinnum út á ári, í maí og desember.
- Aðgangur að skemmti- og kynningarkvöldum félagsins
Inntöku- og félagsgjöld / Félagsárið er frá 1. nóvember til 31. október ár hvert.
Inntökugjöld | gjald |
---|---|
Inntökugjald almennt | 27.800.- |
Inntökugjald yngri en 20 ára | 10.800.- |
Inntökugjald 67 ára og eldri | 10.800.- |
Inntökugjald maka | 10.800.- |
Inntökugjöldin eru heildargjöld fyrir fyrsta árið í félaginu
Félagsgjöld | gjald |
---|---|
Félagsgjald almennt | 13.900.- |
Félagsgjald yngri en 20 ára | 5.400.- |
Félagsgjald 67 ára og eldri | 5.400.- |
Félagsgjald maka | 5.400.- |